Orsök sinueldsins sem kviknaði við Elliðavatn fyrr í dag er enn ókunn. Þótt búið sé að slökkva eldinn verða viðbragðsaðilar áfram á svæðinu næstu klukkutíma til að tryggja að eldurinn blossi ekki upp að nýju.