Leggja fram vantrauststillögu á hendur rektor

Fulltrúar Vöku í Stúdentaráði Háskóla Íslands hafa lagt fram vantrauststillögu á hendur rektor háskólans, Silju Báru Ómarsdóttur. Vaka, sem er í meirihluta í Stúdentaráði, segir ástæðu tilögunnar meðal annars meint ábyrgðarleysi rektors í hækkun skrásetningargjalda og vafa lögmæti þeirra ásamt tillits- og sinnuleysi við hagsmuni stúdenta. „Það er óásættanlegt að rektor Háskóla Íslands stuðli að hækkun skrásetningargjalda og er þar af leiðandi þess valdandi að fjármögnun Háskóla Íslands sé í meira mæli orðið hlutverk stúdenta í stað stjórnvalda,“ segir í yfirlýsingu frá Vökuliðum. Í yfirlýsingu frá stúdentaráðsliðum Vöku er kallað eftir því að rektor falli frá áformum um hækkun skrásetningargjalda og leiti til annarra leiða til fjármögnunar Háskóla Íslands. „Það er ekki ásættanlegt á Íslandi að fjárhagsleg staða fólks komi í veg fyrir þekkingarleit og menntun,“ segir í yfirlýsingu Vökuliða. Háskólaráð samþykkti nýlega að skrásetningargjald yrði hækkað úr 75.000 krónum í hundrað þúsund krónur. Tveir fulltrúar Háskólaráðs greiddu atkvæði gegn tillögunni, það voru fulltrúar stúdenta. Tillagan verður tekin til umræðu á fundi Stúdentaráðs næstkomandi þriðjudag, þann 24. febrúar klukkan 17:30.