Michelle Licata var sextán ára nemandi við Royal Palm Beach High School þegar vinkona hennar sendi henni skilaboð í tíma, skömmu fyrir jól árið 2004. Hún spurði hana hvort hún vildi vinna sér inn auka pening með því að nudda gamla menn. Licata sá fyrir sér að veita mönnum nudd á einhvers konar heilsustofnun eða hjúkrunarheimili og sagði já; hana langaði til að geta gefið öllum í fjölskyldunni sinni smá jólagjöf. Þegar vinkonan sótti Licata einn daginn var áfangastaður þeirra hins vegar hvorki spa eða heimili fyrir aldraða, heldur glæsivilla Jeffrey Epstein við 358 El Brillo Way, á Palm Beach í Flórída.