Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins náði um kvöldmatarleytið að slökkva sinueld sem kviknaði við Elliðavatn síðdegis. Í fyrstu var talið að ekki væri mikill eldur og var þá einn slökkviliðsbíll sendur á staðinn til að kanna aðstæður. Fljótt kom í ljós að þetta var mikill eldur. Fljótt var búið að senda alla slökkviliðsmenn á vakt að berjast við eldinn og kalla út aukamannskap. Sinueldur sem kviknaði við Elliðavatn breiddist hratt út og barst að Guðmundarlundi og Þingahverfi í Kópavogi. Fjölmennt slökkvilið barðist við eldinn og naut aðstoðar lögreglu og björgunarsveita. Talsvert hefur verið um sinuelda á höfuðborgarsvæðinu undanfarið. Jörð er skrjáfaþurr þar sem nær engin úrkoma hefur verið frá áramótum. Eldurinn í dag er sá mesti til þessa. Lítils háttar slyddu eða rigningu er spáð öðru hvoru og skúrum á morgun. Óvíst er þó hvort það dugi til að bleyta almennilega í jarðveginum. Bæði Birgir Finnsson, starfandi slökkviliðsstjóri á höfuðborgarsvæðinu, og Kristinn H. Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Kópavogs, vöruðu fólk við í fréttum og báðu það að fara mjög varlega. Þegar fréttastofa ræddi við Hafstein Halldórsson, varðstjóra hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins, á sjöunda tímanum var hann farinn að sjá fyrir endann á eldunum. Sinueldur sem kviknaði við Elliðavatn breiddist hratt út og barst að Guðmundarlundi og Þingahverfi í Kópavogi. Fjölmennt slökkvilið barðist við eldinn og naut aðstoðar lögreglu og björgunarsveita. Kristinn H. Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Kópavogs, fagnaði því í kvöldfréttum að Guðmundarlundur hefði sloppið úr sinueldunum í dag þrátt fyrir að útlitið hafi verið dökkt á tímabili. Hann sagði að eldurinn hefði átt upptök sín í Vatnsvík, hinum megin við Elliðavatn, en síðan komið vaðandi yfir í átt að Guðmundarlundi. Eldurinn hefði náð aðeins inn í lundinn en ekki væri ljóst um tjón. Sinueldur sem kviknaði við Elliðavatn breiddist hratt út og barst að Guðmundarlundi og Þingahverfi í Kópavogi. Fjölmennt slökkvilið barðist við eldinn og naut aðstoðar lögreglu og björgunarsveita.Sinueldur sem kviknaði við Elliðavatn breiddist hratt út og barst að Guðmundarlundi og Þingahverfi í Kópavogi. Fjölmennt slökkvilið barðist við eldinn og naut aðstoðar lögreglu og björgunarsveita.