Elías hélt hreinu í þriðja sinn í síðustu fimm leikjum

Midtjylland skaust um stundarsakir á topp dönsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta með 0-4 útisigri á Silkeborg í dag. Landsliðsmarkvörðurinn Elías Rafn Ólafsson var á sínum stað í marki Midtjylland.