Michael Claesson, hershöfðingi og yfirmaður sænska heraflans, heimsótti Ísland í vikunni, en tilefnið var það að flugsveit á vegum sænska flughersins sinnir nú loftrýmisgæslu Atlantshafsbandalagsins hérlendis í fyrsta skipti. Claesson fundaði einnig með Jónasi G. Allanssyni, skrifstofustjóra varnarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytisins.