Ekki benda á mig

Sagt hefur verið að það þurfi heilt þorp til að ala upp barn. Vissulega er það rétt en það er vandasamt að vera fyrirmynd ómótaðs einstaklings. Vera leiðandi og hvetjandi í orðum og gjörðum en líka setja mörk og halda reglu.