One Battle After Another heldur áfram að sópa til sín verðlaunum

Sigurganga One Battle After Another, kvikmyndar Pauls Thomas Anderson, heldur áfram en hún var valin besta myndin á BAFTA-verðlaunahátíð bresku kvikmyndaakademíunnar í kvöld. Anderson hlaut verðlaun sem besti leikstjórinn. One Battle After Another var tilnefnd til þrettán verðlauna og hlaut alls sex, flest allra tilnefndra kvikmynda. Hann sagði í þakkarávarpi titilinn passa of vel við samtímann. „Heimurinn er bara orðinn eins og hver baráttan á fætur annarri, en verum vongóð,“ sagði Anderson. Í Lestinni var One Battle After Another lýst með þeim hætti að Leonardo DiCaprio fer með aðalhlutverkið, leikur jónureykjandi pabba í náttslopp, sem er örvæntingafullur að leita að dóttur sinni. Blóðsugumyndin Sinners hlaut þrenn verðlaun úr þrettán tilnefningum, meðal annars fyrir bestu tónlist og besta upprunalega handrit. Athygli vakti að borðtennisfarsinn Marty Supreme hlaut engin verðlaun en var tilnefndur til ellefu. Frankenstein eftir Guillermo del Toro hlaut þrjár viðurkenningar fyrir tæknileg atriði. Mikil fagnaðarlæti brutust út þegar sá breski og lítt þekkti Robert Aramayo hlaut verðlaun sem besti leikarinn og skaut stórstjörnunum Timothee Chalamet og Leonardo DiCaprio þannig ref fyrir rass. Aramayo leikur mann með Tourette í myndinni I Swear, sem byggir á ævi Skotans John Davidson. Aramayo var einnig valinn besti nýliðinn. Hann sagðist ekki geta trúað niðurstöðunni en fagnaði því að myndin varpaði ljósi á eitthvað jafn illa misskilið og Tourette-heilkennið. Írska leikkonan Jessie Buckley hélt áfram að sópa að sér verðlaunum fyrir túlkunina á Agnesi, eiginkonu Willams Shakespeare í Hamnet. Hún er byggð á skáldsögu eftir Maggie O'Farrell. Hamnet var valin besta breska myndin. Af öðrum verðlaunum má nefna að norska myndin Affeksjonsverdi var valin besta erlenda kvikmyndin, sú fyrsta þaðan til að hljóta BAFTA-verðlaun að sögn leikstjórans Joachims Trier. Wunmi Mosaku var valin besta leikkonan í aukahlutverki fyrir Sinners. Hér má sjá helstu niðurstöður. Vilhjálmur ríkisarfi, forseti bresku kvikmyndaakademíunnar, var viðstaddur verðlaunahátíðina ásamt Katrínu eiginkonu sinni eftir stormasama viku fyrir konungsfjölskylduna vegna handtöku frænda hans, Andrews Mountbatten-Windsor. BAFTA-verðlaunin þykja iðulega slá taktinn fyrir Óskarsverðlaunin sem verða afhent eftir þrjár vikur. Tilnefningar til þeirra voru kunngjörðar 22. janúar. Sinners sló sögulegt met með 16 tilnefningar. One Battle After Another fylgdi fast á hælana með þrettán.