Borgarstjóri New York boðar ferðabann vegna stórhríðar og storms

Borgarstjórinn í New York boðar ferðabann fyrir nær allar átta milljónir íbúanna vegna stórhríðar sem gengur yfir norðvestanverð Bandaríkin. Bannið nær ekki til þeirra sem þurfa að vera á ferðinni af neyðarástæðum. Zohran Mamdani biður fólk um halda sig heima nema það þurfi bráðnauðsynlega að vera á ferðinni, götum, stofnbrautum og brúm verði lokað frá klukkan níu á sunnudagskvöldi til hádegis á mánudegi. Mamdani segir áratug síðan annað eins illviðri skall á New York. Snjókoman getur numið fimm til átta sentímetrum á klukkustund þegar verst lætur, samkvæmt upplýsingum Veðurstofu Bandaríkjanna. Einhvers staðar gætu orðið sjávarflóð. Veðrið muni færast hratt í aukana allt frá Maryland suðaustur til Nýja Englands og geti valdið miklum usla í samgöngum. Líklegt þykir að snjókoma og hvassviðri valdi rafmagnstruflunum eða straumrofi á svæði þar sem næstum 54 milljónir manna búa. Mikie Sherrill, ríkisstjóri New Jersey, hefur lýst yfir neyðarástandi og í Boston verða allir skólar og opinberar byggingar lokaðar á morgun. Borgarstjórinn Michelle Wu hvetur almenning til að búa sig vel undir óveðrið, láta fara vel um sig heima og fara ekki út á vegi svo björgunarlið geti athafnað sig þegar þörf krefur.