Icelandair hefur aflýst ferðum til og frá austurströnd Bandaríkjanna.RÚV / Ragnar Visage Icelandair hefur aflýst tveimur komum frá New York klukkan sex í fyrramálið og ferðum þangað og til Boston síðdegis vegna stórhríðar á austurströnd Bandaríkjanna. Þetta kemur fram á vef Isavia . Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur hefur í færslu á Facebook eftir bandarískum veðurfræðingum að á JFK-flugvelli við New York megi búast við yfir fimmtíu sentímetrum af snjó. Veðrið mun að sögn Veðurstofu Bandaríkjanna færast hratt í aukana allt frá Maryland suðaustur til Nýja Englands og getur valdið usla í samgöngum. Líklegt þykir að snjókoma og hvassviðri valdi rafmagnstruflunum eða straumrofi á svæði þar sem næstum 54 milljónir manna búa.