Vatnsból höfuðborgarbúa hefðu getað verið í hættu af völdum gróðureldanna við Elliðavatn í gær hefði vindátt verið önnur. Þannig brunar geti auðveldlega mengað vatnsbólin. „Í raun var vindáttin heppni,“ segir Brynja Ragnarsdóttir forstöðukona Vatnsmiðla á vef Veitna og bætir við að ekki megi reiða sig á lukkuna. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins náði um kvöldmatarleytið í gær að slökkva víðfeðman sinueld sem kviknaði við Elliðavatn síðdegis og teygði sig í átt að vatnsbólum Veitna. Brynja Ragnarsdóttir segir bruna af þessu tagi grafalvarlega, ekki þurfi mikið að gerast til að mengunarefni frá eldinum skolist niður í drykkjarvatn og áréttar að öll umgengni skapi hættu á svæðinu. „Þótt mannvirki sleppi þá geta mengunarefni af eldinum skolast niður í drykkjarvatnið okkar. Það þarf ekki mikið til, þarna er til dæmis fólk að grilla,“ segir Brynja. Áhersla sé lögð á varnir vatnsbólanna, slökkvilið sé vitaskuld meðvitað um hvar það er að störfum og noti eingöngu hreint vatn við slökkvistarfið. „En það geta orðið óhöpp í kringum bifreiðar og búnað í tengslum við slökkvistarfið þannig að allt í allt er áhættan mikil, ekki bara af eldinum,“ segir Brynja. Hún þakkar slökkviliðinu samstarfið en segir Veitur þurfa umboð til athafna til að setja upp forvarnir hratt og örugglega án þess að festast í flókinni stjórnsýslu ríkis og sveitarfélaga.