Pútín segir endurnýjun kjarnorkuvopnabúnaðar algert forgangsatriði

Vladimír Pútín Rússlandsforseti boðar að kjarnorkuvopnabúr landsins verði þróað og uppfært enn frekar ásamt öllum deildum hersins. Hann sagði í gær að uppbygging kjarnorkuhers landsins væri „algjört forgangsverkefni“ eftir að Nýja-Startsamkomulagið við Bandaríkin um fækkun kjarnorkuvopna rann út. Þannig væri öryggi Rússlands tryggt með hernaðarlegri fælingu og jafnvægi herafla ríkja heims. Pútín sagði þetta í sjónvarpsávarpi í tilefni dags Verndara föðurlandsins sem einkennist af miklum hersýningum og föðurlandsást. Forsetinn hét því jafnframt að byggja á þeirri reynslu sem fengist hefði af næstu fjögurra ára stríði í Úkraínu til að styrkja landher og sjóher, í raun herinn allan. Hann yrði gerður enn bardagahæfari, hreyfanlegri og betur í stakk búinn að berjast við allar aðstæður, jafnvel þær allra mest krefjandi. Voldugustu kjarnorkuveldin, Rússland og Bandaríkin, eru hvorugt bundið lengur af ákvæðum START-samkomulagsins sem rann sitt fimmtán ára skeið án endurnýjunar snemma í febrúar. Pútín hefur sagt Rússlandsstjórn ávallt reiðubúna til viðræðna á jafnréttisgrundvelli svo tryggja megi stöðugleika í heiminum.