Íranskir ráðamenn vonast til að miði í samkomulagsátt um nýjan kjarnorkusamning við Bandaríkin þegar viðræður hefjast að nýju á fimmtudag. Bandaríkjamenn hafa aukið verulega á herafla sinn í Mið-Austurlöndum til að þrýsta á Írani. Donald Trump forseti hefur ítrekað hótað þeim hörðum árásum náist ekki samkomulag. Utanríkisráðherrann Abbas Araghchi sagði verið að draga upp helstu atriði samnings í viðtali á CBS í gær, skömmu eftir að aðalsamningamaður Bandaríkjanna, Steve Witkoff, spurði opinberlega hví Íranir hefðu ekki enn gefist upp undan þrýstingnum. „Hvers vegna segjast þeir ekki einfaldlega ekki ætla að smíða kjarnavopn og sýna okkur þannig samning?“, spurði Witkoff. Araghchi ítrekaði jafnframt rétt Írana til að auðga úran og verja sig réðust Bandaríkjamenn til atlögu að þeim. Hann kvaðst þó bjartsýnn á diplómatíska lausn. „Ég trúi að við finnum lausn á helstu ágreiningsmálunum þegar við hittumst aftur, líklega í Genf á fimmtudag,“ sagði Araghchi. Vefritið Axios hefur eftir ónafngreindum en háttsettum bandarískum embættismanni að af fundi verði í vikunni afhendi Íranir tillögur sínar innan tveggja sólarhringa.