Minnihlutastjórn Jettens tekur við völdum í dag

Ný ríkisstjórn tekur við völdum í Hollandi í dag undir forystu miðjumannsins Robs Jetten, sem verður yngsti forsætisráðherra í sögu landsins og sá fyrsti opinberlega samkynhneigði. Flokkur hans D66 sigraði í kosningum í október sem boðað var til eftir að Frelsisflokkurinn, harðlínuhægriflokkur Geerts Wilders, dró sig úr ríkisstjórninni. Rob Jetten tókst á 117 dögum að mynda samsteypustjórn með miðhægriflokknum CDA og frjálslynda flokknum VVD, sem vantar níu þingmenn til að hafa meirihluta þingsins á bak við sig. Flokkarnir birtu stefnuyfirlýsingu í janúar þar sem þeir hétu fullum stuðningi við Úkraínu og fylgispekt við fjárframlög til Atlantshafsbandalagsins. Fráfarandi ríkisstjórn Dicks Schoof er sú hægrisinnaðasta sem setið hefur að völdum og þótt sú nýja sé ekki jafnlangt til hægri, segir Sarah de Lange, stjórnmálafræðiprófessor við Leiden-háskóla, stutt á milli stefnumiða hvað varðar ríkisútgjöld og stefnu í innflytjendamálum. Flokkarnir vilja meðal annars herða á reglum um fjölskyldusameiningar. Stjórnin stefnir einnig að niðurskurði félagslegra bóta, meðal annars vegna atvinnuleysis, til að fjármagna aukin útgjöld til varnarmála. De Lange segir að það geti reynst stjórninni þrautin þyngri að koma stærri breytingum í gegnum þingið því hún þurfi að treysta á stuðning stjórnarandstöðunnar. Hugur Jettens stóð til myndunar stjórnar sem hefði stuðning 86 þingmanna með ráðherrum úr D66, miðhægriflokknum CDA, hægriflokknum VVD auk bandalags Græningja og Verkamannaflokksins. Sá hængur reyndist á að Dilan Yeşilgöz, leiðtogi VVD, þvertók alveg fyrir samstarf við bandalagið.