Nóttin var með rólegasta móti hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu eftir annasaman dag í gær þar sem mikill sinueldur logaði víða. Mestur bruninn varð við suðvesturhorni Elliðavatns og í átt að Heiðmörk en þar tókst að ráða niðurlögum eldsins á áttunda tímanum í gærkvöldi.