Svona endaði medalíutaflan — Noregur sló tvö met

Vetrarólympíuleikunum er nú lokið. Norðmenn unnu flestar medalíur alls og bættu sig eigið met frá leikunum árið 2022. Þá unnu Norðmenn 16 gull en þeir unnu 18 gull alls í ár. Þá unnu þeir alls 41 medalíu sem er nýtt met en Norðmenn áttu það frá 2018, þegar þeir unnu 39 medalíur. Johannes Hosflot Klæbo vann einn síns liðs sex gull og væri í 9. sæti í medalíutöflunni einn og sér. Miðað er við gullmedalíur í hefðbundinni Ólympíuröðun. Alls unnu 63 þjóðir ekki medalíu og er Ísland þar á meðal. Hér að neðan má sjá helstu medalíutölfræði leikanna í ár auk sögulegrar yfirferðar. Bandaríkin með sína bestu leika Bandaríkin tóku 12 gull og bættu þar með met sitt frá ÓL árið 2002 á heimavelli í Salt Lake City. Þar unnu Bandaríkjamenn 11 gull alls. Norðmenn sigursælastir í sögunni Norðmenn eru sigursælasta þjóð sögunnar og breikka enn frekar bilið milli sín og Bandaríkjanna sem eru í 2. sæti. Heimamenn bættu met sitt Ítalír slógu eigið met frá leikunum í Lillehammer árið 1994. Þá unnu Ítalir sjö gull og 20 medalíur alls. Heimamenn unnu 10 gull í ár og 30 medalíur alls. Ítalir náðu því sínum langbesta árangri í sögunni. Þeir eru þó í 4. sæti í heildarröðuninni þar sem Hollendingar tóku fleiri silfur en Ítalir röðuðu inn bronsmedalíum og voru þar með 14 alls.