Þarf lítið til að menga neysluvatn höfuðborgarsvæðisins

Huga þarf betur að forvörnum við vatnsból höfuðborgarsvæðisins því það þarf lítið til þess að menga neysluvatn, segir Brynja Ragnarsdóttir, forstöðumaður vatnsmiðla hjá Veitum. Vatnsból höfuðborgarbúa hefðu getað verið í hættu af völdum gróðureldanna við Elliðavatn í gær hefði vindátt verið önnur. Eldurinn kviknaði síðdegis í gær og slökkvilið réði niðurlögum hans í gærkvöld. „Þessi atburður sýnir okkur í raun hvað þarf ótrúlega lítið til að menga neysluvatn höfuðborgarsvæðisins. Það er svo mikilvægt að við séum varkár nálægt Vatnsendasvæðunum okkar, þar sem vatnsbólin okkar eru. Það þarf að takmarka umferð og alls ekki vera með opinn eld nálægt þessum svæðum,“ sagði Brynja í Morgunútvarpinu á Rás 2. „Við erum að sjálfsögðu með tilbúnar viðbragðsáætlanir við svona óvæntum atburðum en við getum ekki bara verið í viðbragði. Við verðum líka að huga að forvörnum og svo getum við náttúrulega ekki stólað á heppni heldur þegar kemur að því að vernda hreina neysluvatnið okkar og við erum bara að leggja mjög mikla áherslu á að bæta forvarnir á þessum svæðum í Heiðmörk.“ Veitur vinna að deiliskipulagi með Reykjavíkurborg til að efla forvarnir fyrir ómissandi innviða. Brynja segir að passa þurfi umgengni við vatnsbólin og takmarka umferð um Heiðmörk. „Veitur eiga og reka stærstu ómissandi innviði landsins og það er á okkar ábyrgð að þetta sé í lagi. En við þurfum líka að hafa umboð til athafna til þess að geta sett upp forvarnir og við viljum gera það hratt og örugglega til að tryggja að neysluvatnið okkar sé í lagi.“ Vatnsbólin voru ekki í hættu vegna sinueldsins í gær en Brynja segir það í raun hafa verið heppni. „Slökkvilið var mjög meðvitað um að vera nálægt vatnsendasvæði og notaði eingöngu hreint vatn til að slökkva eldinn. Þannig að vatnsbólin okkar sluppu, þau eru í lagi. Við vorum mjög heppin í gær.“