Það er áhugaverð þversögn fólgin í því að kalla sig sagnaþjóð, en horfa á sagnamennsku sem kostnað. Við Íslendingar lítum gjarnan á menningu, sjálfsmynd, ímynd og markaðssamskipti eins og mjúkt aukaatriði; gott er að hafa þegar vel árar, en það fyrsta sem skorið er niður þegar að þrengir.