Rannsókn lögreglu leiddi í ljós að kona sem nágrannar höfðu ekkert orðið varir við langtímum saman í covid-bylgju vetrarins 2020–2021 hafði legið látin í íbúð sinni um tveggja mánaða skeið, myrt af syni sínum. Sagan af því hvernig Dale Morgan myrti móður sína og hylmdi yfir morðið er sögð í nýjum þætti þáttaraðarinnar „The Truth About My Murder“ á BBC One Wales. Þar kemur fram að hann nýtti sér samkomutakmarkanir og útivistarbönn til að hylma yfir morðið. Judith Read bjó í velska þorpinu Pembroke Dock og vann þar við umönnunarstörf. Sonur Read flutti inn til hennar í covid til að annast hana meðan hún glímdi við veikindi, þá orðin 68 ára gömul. Fljótlega hætti Read að sjást opinberlega. Nágrannar spurðu soninn en hann kvað hana hafa einangrað sig til að draga úr hættu á því að smitast af covid. Að lokum fylltist nágranni efasemdum eftir að sonurinn sagði móður sína hafa verið lagða inn á sjúkrahús en nágranninn fékk þær upplýsingar á spítalanum að þar væri hana ekki að finna. Lögregla var send á staðinn og varð að brjóta sér leið inn í húsið eftir að hafa séð líflausan líkama í gegnum gluggann. Þar fannst lík Judith Read með mikla höfuðáverka sem voru faldir með poka yfir höfði hennar. Morðvopnið fannst við hlíð líksins, blóðugur hamar. Sonur Read fannst hvergi og í fyrstu var talið að hann kynni að hafa orðið fórnarlamb sömu árásar. Seinna kom í ljós við rannsókn að hann hefði ráðist að móður sinni með hamri og barið hana ítrekað í höfuðið. Fram kemur í þættinum að Morgan hafi búið í sömu litlu íbúð og móðir hans í tvo mánuði. Sálfræðingur sem BBC ræddi við sagði að þótt erfitt væri að skilja slíkt væri það til marks um hvernig fólk neitaði stundum að horfast í augu við það sem það hefði gert. Stundum skammaðist fólk sín svo mikið fyrir glæpi sína að það reyndi að láta sem ekkert hefði gerst. Var pokinn yfir andliti móðurinnar talinn hluti af tilraun Morgans til að fela glæpinn fyrir sjálfu sér. Judith Read, sem nágrannar kölluðu stundum Karaoke-drottninguna, var jarðsungin skömmu síðar og röðuðu hundruð sér upp þar sem líkfylgd hennar fór um götur Pembroke Dock.