Skaginn lækkar í verði

Hlutabréfaverð í Skaganum hefur lækkað um rúmlega fimm prósent í morgun. Þetta gerist í fyrstu viðskiptum eftir að tilkynnt var að samrunaviðræðum Skagans og Íslandsbanka hefði verið hætt . Hlutabréfaverð í Íslandsbanka hefur aftur á móti hækkað lítillega. Skaginn á VÍS, Fossa og Íslensk verðbréf. Viðræður um samruna hófust í október. Stjórnendur fyrirtækjanna voru ósammála um verðmat þeirra ef af samrunanum yrði. Hlutabréfaverð Íslandsbanka stefndi í öfuga átt við hlutabréfaverð Skagans í morgun.RÚV / Ragnar Visage