Stjórinn sem sótti Viktor og seldi Orra rekinn úr starfi
Sune Smith-Nielsen hefur verið rekinn úr starfi íþróttastjóra FC Kaupmannahafnar. Meðal hans stærstu sigra í starfi fyrir félagið voru kaup og sölur á Íslendingum en árangur liðsins á tímabilinu hefur ekki staðið undir væntingum.