Enn ekkert á­kveðið um hve­nær þjóðar­at­kvæða­greiðslan fer fram

Utanríkisráðherra segir ekki liggja fyrir hvenær þjóðaratkvæðagreiðsla um að taka aftur upp aðildarviðræður við Evrópusambandið fer fram þrátt fyrir fréttir um að hún kunni að verða haldin strax í sumar. Hagsmunir þjóðarinnar ráði hvenær atkvæðagreiðslan fer fram.