Almenningur tafði aðgerðir slökkviliðsins

Um 30-40 slökkviliðsmenn tóku þátt í að slökkva sinueldinn í Kópavogi í gær. Starfandi slökkviliðsstjóri höfuðborgarsvæðisins segir mestar líkur á að um íkveikju hafi verið að ræða, þó að það hafi að vísu getað verið óviljaverk. Þá fundu slökkviliðsmenn verulega fyrir ágangi almennings á vettvangi.