„Mannréttindasáttmálinn er ekki matseðill“

Antonio Guterres framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna málaði stöðu mannréttinda í heiminum afar dökkum litum þegar hann opnaði árlega ráðstefnu Mannréttindaráðs SÞ í morgun. Hann byrjaði ræðu sína með stórri yfirlýsingu. „Allsherjarárás á mannréttindi á sér stað um allan heim. Reglum valdsins er beitt gegn reglum laganna. Og þessar árásir koma ekki úr launsátri eða að óvörum. Þetta gerist fyrir framan augun á okkur og oft eru það þeir sem hafa mestu völdin sem leiða árásirnar.“ Hann minntist því næst á það sem hann segir vera augljós mannréttindabrot gegn Palestínumönnum á hernumdum svæðum. Þar sé verði að slá af tveggja ríkja lausn um hábjartan dag. „Alþjóðasamfélagið getur ekki látið þetta viðgangast,“ sagði Guterres. Þá sé þörfin fyrir mannúðarstörf að aukast á sama tíma og fjármagn til hennar hrynur. Fleiri lönd eigi um sárt að binda, loftslagsváin verði sífellt meiri og tæknin, til að mynda gervigreindin, sé í meiri mæli notuð til að kæfa mannréttindi og auka ójafnrétti. „Mannréttindasáttmáli Sameinuðu þjóðanna, sem alþjóðalög um mannréttindi byggja á, er ekki matseðill. Leiðtogar geta ekki bara valið það sem þeir eru ánægðir með og litið fram hjá öðru.“