Bílnúmeralesarar breyta engu fyrir 75% íbúa

Notkun bílnúmeralesara á endurvinnslustöðvum Sorpu á höfuðborgarsvæðinu frá og með 1. mars mun ekki hafa áhrif á stærstan hluta borgarbúa. Tilgangur lesaranna er fyrst og fremst að greina viðskiptavinahóp Sorpu, einfalda verkferla og að rukka viðskiptavini sem ekki hafa greitt í sjóði sveitarfélaga. Vilja að ólíkir hópar greiði rétt gjald Á Sorpu eru tvær gjaldskrár, annars vegar fyrir íbúa á höfuðborgarsvæðinu og hins vegar fyrir aðra. Að sögn Gunnars Dofra Ólafssonar, sviðsstjóra þjónustu-og samskiptasviðs Sorpu, borga höfuðborgarbúar í Sorpu samhliða fasteignagjöldum sem gerir þeim kleift að henda ákveðnum tegundum af rusli án þess að vera rukkaðir um það í hliðinu. Á sama tíma sé allt að fjórðungur þeirra sem komi á endurvinnslustöðvar höfuðborgarsvæðisins skráður sem fyrirtæki og hátt í 10 prósent skráðir sem íbúar utan höfuðborgarsvæðisins. Íbúar eigi ekki að niðurgreiða fyrir fyrirtæki Gunnar segir hvorki fyrirtæki né íbúa utan höfuðborgarsvæðisins hafa greitt í sameiginlega sjóði sveitarfélaganna. Því sé bílnúmeralesanum ætlað að rukka þá sem ekki hafi greitt rétt verð í Sorpu og að stuðla að aukinni sanngirni fyrir alla sem sæki endurvinnslustöðvar. „Þetta er í rauninni fyrst og fremst hugsað til að tryggja það að íbúar á höfuðborgarsvæðinu sem eru búnir að borga sín gjöld fái þá þjónustu sem þeir eru búnir að borga fyrir en niðurgreiði ekki sömu þjónustu fyrir fyrirtæki eða fyrir íbúa utan höfuðborgarsvæðisins. Þannig að fyrir svona 75% þeirra sem koma til okkar verður engin breyting.“ Hyggjast einfalda ferla og auka gagnsæi Gunnar segir tilkomu bílnúmeralesaranna vera á meðal þeirra skrefa sem Sorpa hyggist taka á næstu misserum til að einfalda ferla og auka gagnsæi á endurvinnslustöðvum. Auk þessa hafi komið til tals að setja á laggirnar kerfi þar sem neytendur fái rafrænt klippikort til að hafa yfirsýn yfir ferðir sínar. „Við sjáum alveg að fólk kvartar yfir því að það viti ekki hvort það verði rukkað þegar það kemur til okkar og um hvað mikið.“ Fyrirkomulagið mætti vera skýrara og þjónusta einfölduð. „Að það verði hreinlega að þú fáir ákveðið mörg skipti sem þú mátt koma með rusl í Sorpu og borgar síðan þegar þú ert búin með þau,“ segir Gunnar.