Húsnæðis- og mannvirkjastofnun og Skipulagsstofnun sameinast

Alþingi hefur samþykkt lög sem fela í sér sameiningu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar og Skipulagsstofnunar í eina öfluga stofnun á sviði húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsmála. Með sameiningunni flyst starfsemi Skipulagsstofnunar inn í sameinaða stofnun. Fyrir sameiningu störfuðu um 150 starfsmenn hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun á þremur starfsstöðvum víðs vegar um landið, og um 25 starfsmenn hjá […]