Heimasíða Miðflokksins varð fyrir netárás kínverskra „botta“ eða stafrænna vélmenna og liggur því niðri. Þetta staðfestir Gunnar Bragi Sveinsson, framkvæmdastjóri Miðflokksins, í samtali við fréttastofu. „Við sáum þetta bara í morgun og létum okkar hýsingaraðila vita,“ segir hann. Þar hafi hann fengið þau svör að þetta væri vel þekkt með wordpress-síður. Stafræn vélmenni keyri um netið og ráðist sjálfkrafa á öryggisbresti. Gunnar Bragi telur að enginn skaði sé skeður. Unnið sé hörðum höndum að því að koma heimasíðunni í samt lag á ný. „Síðan þarfnast uppfærslu og svo bætum við við öryggi ef þarf,“ segir Gunnar Bragi. Vonir standa til að síða flokksins verði komin upp aftur í kvöld. „En ég get ekkert sagt til um það. Við gerum bara það sem okkar hýsingaraðili segir okkur að gera.“