Fjallað hefur verið um þátttöku einstaklinga með tvöfaldan ríkisborgararétt í ísraelska hernum í fréttamiðlum erlendis eftir að frjálsu félagasamtökin Hatzlacha öfluðu gagna um þessa einstaklinga í krafti upplýsingalaga Ísraels. Fréttir af þessu voru meðal annars birtar á vefsíðunni Declassified UK þar sem sagt var frá því að 2.000 hermenn með breskan og ísraelskan ríkisborgararétt hefðu gegnt herskyldu í ísraelska hernum og tekið þátt í stríði Hamas og Ísrael. Fyrir það hafði einungis verið hægt að fá upplýsingar um breska hermenn sem ekki höfðu ísraelskan ríkisborgararétt og voru skráðir í ísraelska herinn og voru þeir einungis 54 talsins. Fréttastofa sendi fyrirspurn á ísraelska herinn og fékk staðfest að einn hermaður bæri bæði íslenskan og ísraelskan ríkisborgararétt. Fréttastofa sendi fyrirspurn á utanríkisráðuneytið á Íslandi sem sagðist ekki hafa upplýsingar um viðkomandi. Upplýsingar Hatzlacha ná til skráningar í ísraelska herinn í mars 2025. Hamas og Ísrael sömdu um vopnahlé í október á síðasta ári. Samkvæmt gögnunum eru fleiri en 50 þúsund hermenn í ísraelska hernum með að minnsta kosti eitt annað ríkisfang. Meirihluti þeirra er með ýmist bandarískt eða evrópskt vegabréf. Þá eru einnig dæmi um nokkur hundruð einstaklinga frá Suður-Ameríku og Afríkulöndum sem einnig eru með ísraelskan ríkisborgararétt og voru skráðir í ísraelska herinn. Fréttastofa hefur óskað eftir frekari upplýsingum frá ísraelska hernum en ekkert meira liggur fyrir að svo stöddu annað en að viðkomandi sé skráður í ísraelska herinn.