Rithöfundarheimsókn: Margrét S. Höskuldsdóttir

Margrét S. Höskuldsdóttir rithöfundur verður á Bókasafninu á Ísafirði 7. mars og spjallar þar við gesti um bækur sínar. Margrét hefur gefið út þrjár skáldsögur sem allar eiga það sameiginlegt að gerast á Vestfjörðum. Bækurnar eru Dalurinn, Í djúpinu og Lokar augum blám en sú síðastnefnda hlaut nýverið Blóðdropann, hin Íslensku glæpasagnaverðlaun. Margrét er Dýrfirðingur og bjó á Þingeyri til sextán […]