Liðsmenn glæpasamtaka í Mexíkó hafa drepið á þriðja tug þjóðvarðliða í ofbeldisöldu, sem hófst þegar leiðtogi þeirra var drepinn í hernaðaraðgerð. Að minnsta kosti 30 liðsmenn glæpagengisins Jalisco liggja einnig í valnum, að sögn mexíkóskra stjórnvalda. Utanríkisráðuneytinu er ekki kunnugt um íslenska ríkisborgara á óeirðasvæðum í Mexíkó, að því er fram kemur í skriflegu svari til fréttastofu. Til þessa hafa heldur engar beiðnir um aðstoð borist borgaraþjónustunni. „Borgaraþjónustan fylgist grannt með stöðu mála í landinu sem og ferðaráðum helstu samstarfsríkja sem hafa til þessa ekki varað við ferðum til Mexíkó.“ Ráðuneytið er einnig í sambandi við íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu sem kom til Mexíkó í gær. KSÍ segir ekki hafa komið til tals að fresta vináttuleik við Mexíkó sem er fyrirhugaður aðfaranótt föstudags. Leiðtogi glæpagengisins Jalisco féll í aðgerð mexíkóska hersins í gær. Eftir það fóru hópar glæpamanna um, kveiktu elda og ógnuðu fólki. Mexíkósk stjórnvöld segja að 25 þjóðvarðliðar hafi fallið í átökum við liðsmenn samtakanna, auk fangavarðar og starfsmanns skrifstofu ríkissaksóknara. Þrjátíu liðsmenn Jalisco eru einnig látnir.