Drangsnesskapella

Drangsnesskapella er í skólahúsnæði Grunnskóla Drangsness og samnýtt með skólanum. Í kapellunni er það fyrirkomulag að hægt er að loka af altari, skrúðhús og prédikunarstól og skipta aðalrými kapellunnar í tvær skólastofur. Altaristaflan er málverk eftir Eggert Guðmundsson sem sýnir Jesú kyrra vind og sjó. Kapellan á kaleik og patínu úr nýsilfri frá árinu 1944. […]