Sporin hræða

Fyrir tveimur árum fjallaði ég í vefmiðli mínum um þá ákvörðun Menntaskólans í Reykjavík að draga úr latínukennslu við skólann. Ég sagði sporin hræða en rektor fullvissaði mig í viðtali okkar að breytingarnar þá boðuðu ekki annað meira og verra. Annað hefur komið á daginn, líkt og fjallað er um í fjölmiðlum í dag.