„Við erum að upplifa mikið bakslag“

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra ávarpaði í dag mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna á árlegri ráðherraviku ráðsins í Genf í Sviss. Í ræðu sinni að síðasta ár hefði verið afar krefjandi fyrir alþjóðakerfið í skugga átaka víða um heiminn. Mæla megi að þverrandi virðing sé fyrir alþjóðalögum og mannréttindum. „Við erum að upplifa mikið bakslag þegar það kemur að mannréttindum,“ segir Þorgerður Katrín. Ræðan hafi verið í samræmi við áherslur Íslands yfir þau þrjú ár sem landið á sæti í ráðinu. „Það er áhersla á jafnrétti, réttindi minnihlutahópa, barna og síðan líka á að loftslagsbreytingar verði ekki undanskildar í þessari umræðu,“ segir hún. Meðal þess sem hún lagði áherslu á var mótstaða við innrás Rússlands í Úkraínu og að ástandið á Gaza væri enn skelfilegt þrátt fyrir að vopnahlé ríkti á milli Hamas og Ísrael. Ísland var kosið í ráðið árið 2024 og tók sæti í mannréttindaráðinu í ársbyrjun 2025. Þetta er fyrsta heila kjörtímabilið sem Ísland situr í ráðinu. Kosið er til þriggja ára í senn. Þorgerður segir að Ísland hafi á sínu fyrsta ári fylgt eftir athugunum á ofbeldisverkum sem klerkastjórnin í Íran hafi framið gegn mótmælendum og beitt sér fyrir því að aukafundur var haldinn í janúar um mannréttindabrot í landinu. Þá hafi Ísland einnig tekið undir ályktanir gegn slæmri meðferð á konum í Afganistan. „Við Íslendingar erum að beita rödd okkar og við erum líka að nota aukinn þunga Norðurlandanna og mb8-ríkjanna, það er að segja Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna,“ segir hún.