Sálfræðileg aðstoð, rannsókn á meðferðar- og vistheimilum, möguleikar á sanngirnisbótum og aukið eftirlit með fósturráðstöfunum eru verkefni sem Stjórnarráðið hefur þegar komið í farveg eftir umfjöllun Kveiks um brotalamir á vistheimilinu Bakkakoti. Forsætisráðuneytið, dómsmálaráðuneytið, félags- og húsnæðismálaráðuneytið og mennta- og barnamálaráðuneytið hafa nú samráð sín á milli um aðgerðir í kjölfar umfjöllunar í fjölmiðlum um Bakkakot og málefni fósturbarna. Rannsaka málefni fósturbarna í fortíðinni Forsætisráðuneytið er í viðræðum við Landspítalann um útfærslu á áfallahjálp og greiningu á þjónustuþörf og sálfræðiaðstoð vegna málefna fósturbarna. Úrlausn verður kynnt síðar í þessari viku. Þá stendur til að koma á fót sérstakri rannsóknarnefnd sem verður falið að fjalla um málefni fósturbarna í fortíðinni og hvernig eftirliti hefur verið háttað. Nefndin myndi hafa heimildir, sem stjórnvöld hafa ekki að óbreyttum lögum, til að safna saman upplýsingum og greina þær. Fyrsta viðfangsefnið yrði að fjalla um Bakkakot vegna þeirra ásakana sem hafa komið fram en jafnframt er gert ráð fyrir að nefndin geti gert tillögu til stjórnvalda um frekari rannsóknir. Frumvarp þessa efnis verður lagt fram á Alþingi í vor og að því búnu verður skipað í nefndina. Ekki er vitað hvað nefndin þarf langan tíma í sína vinnu né hvenær niðurstöður munu liggja fyrir. Lög um sanngirnisbætur endurskoðuð Málið er margbrotið og alvarlegt svo að verkefnalistinn er langur. Til dæmis stendur til að endurskoða lög sem snúa að heimildum til greiðslu sanngirnisbóta en þau eru fallin úr gildi og frumvarp um að endurvekja þau verður lagt fram á Alþingi í haust. Í svari sem fréttamaður fékk frá forsætisráðuneytinu í dag segir að þarna séu fjölmörg sjónarmið sem þurfi að líta til, eins og jafnræði og að kostnaður fyrir ríkissjóð sé fyrirsjáanlegur. Þarna verði líka skoðað hvort þeir sem vistaðir voru á vöggustofum eigi rétt á sanngirnisbótum. Fréttastofu hefur borist fjöldi ábendinga eftir umfjöllunina um málið, bæði frá fólki sem dvaldi sem börn á vistheimilum víðs vegar á landinu og hefur erfiðar sögur að segja og frá starfsfólki barnaverndarnefnda sem finnst mörgum erfitt að allri ábyrgð sé varpað á þau. Stjórnvöld hafa lagt til aðgerðaáætlun til að bæta úr málefnum þeirra sem dvöldu á vistheimilum sem börn. Breyta þarf lögum til að veita heimildir fyrir greiðslu sanngirnisbóta og rannsókn á heimilunum.