Michael Carrick er enn taplaus sem knattspyrnustjóri Manchester United eftir 1-0 útisigur á Everton í Bítlaborginni í kvöld. United komst upp í fjórða sætið í ensku úrvalsdeildinni og hefur unnið fimm af sex deildarleikjum sínum undir stjórn Carrick.