Charles Kushner, sendiherra Bandaríkjanna í Frakklandi, mætti ekki á fund í utanríkisráðuneyti Frakklands sem hann var kallaður á í dag. Kushner mun ekki lengur hafa beinan aðgang að ráðherrum Frakklands en fær að sinna tilteknum erindrekstri. Franski miðillinn Le Monde greinir frá þessu. Jean-Noël Barrot, utanríkisráðherra Frakklands, kallaði Kushner á fund í kjölfar ummæla ríkisstjórnar Trumps um Quentin Deranque, öfga-hægrimann sem var drepinn fyrr í mánuðinum, sem bandaríska sendiráðið í París deildi. Deranque, sem var 23 ára, lést vegna áverka á höfði eftir að minnst sex manns réðust á hann á mótmælafundi öfga-hægrimanna gegn vinstrisinnaða stjórnmálamanninum Rima Hassan sem hélt tölu við háskóla í Lyon. Barrot fordæmdi í gær tilraunir til að nýta dauða Deranque „í pólitískum tilgangi“ og kallaði Kushner á fund klukkan 19:00 í kvöld á staðartíma. Samkvæmt heimildum fréttaveitunnar AFP sendi Kushner embættismann úr sendiráðinu í sinn stað. „Í ljósi þessa augljósa skorts á skilningi á grundvallarkröfum sendiherraembættisins og þeim heiðri sem fylgir því að vera fulltrúi lands síns, hefur ráðherrann (Barrot) farið fram á að hann (Kushner) fái ekki lengur beinan aðgang að meðlimum frönsku ríkisstjórnarinnar,“ hefur Le Monde eftir franska utanríkisráðuneytinu. Sendi staðgengil á fund í ágúst Bandarísk stjórnvöld hafa fordæmt ofbeldi af hálfu öfgavinstrimanna og kallað eftir því að þeir sem beri ábyrgð verði dregnir fyrir rétti. Þá lenti Giorgia Meloni, forsætisráðherra Ítalíu, í orðaskaki við Emmanuel Macron Frakklandsforseta, sem hvatti hana til að hætta að „tjá sig um það sem gerist í öðrum löndum.“ Sonur sendiherrans Kushner er kvæntur Ivönku Trump, dóttur Donalds Trumps Bandaríkjaforseta. Kushner tók við embætti sínu í París á síðasta ári og var kallaður á fund utanríkisráðuneytisins í lok ágúst, eftir að hafa birt opið bréf til Emmanuel Macron Frakklandsforseta þar sem Kushner sakaði frönsk stjórnvöld um að hafa ekki gert nóg til að stemma stigu við ofbeldi gegn Gyðingum í Frakklandi. Sendifulltrúi Bandaríkjanna, staðgengill sendiherrans, sat þann fund.