Stór hluti hækkunar skráningar­gjalds fari í að borga veitinga­reikning HÍ

Meirihluti Stúdentaráðs Háskóla Íslands hefur lagt fram vantrauststillögu á hendur rektor skólans vegna hækkunar á skráningargjaldi við skólann. Gjaldið hefur staðið í 75 þúsund krónum síðustu tólf ár og stendur nú til að hækka það upp í 100 þúsund krónur en um er að ræða þriðjungshækkun.