Hafi séð Margréti Löf beita móður sína of­beldi rétt áður en hún myrti föður sinn

Sigurbjörn Bárðarson hestaþjálfari segist hafa orðið vitni að því þegar Margrét Halla Hansdóttir Löf beitti móður sína ofbeldi. Nokkrum dögum síðar hafi hún myrt föður sinn. Sigurbjörn leigði fjölskyldunni bás í sínu hesthúsi og segist lengi hafa furðað sig á því hversu illa Margrét hafi komið fram við foreldra sína.