Anthony Albanese, forsætisráðherra Ástralíu, segir ríkisstjórn sína muna senda bréf til ríkja breska samveldisins á morgun varðandi stuðning sinn við að Andrew, fyrrverandi prins, yrði fjarlægður úr ríkiserfðaröðinni. Andrew hefur þegar verið sviptur tign, titlum og heiðursnafnbótum. Albanese segist hafa rætt við Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands, um Andrew sem er til rannsóknar fyrir meint brot í opinberu starfi í kjölfar uppljóstrana um samskipti hans við bandaríska kynferðisafbrotamanninn Jeffrey Epstein. Að sögn Albanese þarf Bretland að hefja breytingar á ríkiserfðaröðinni en þær krefjist svo samþykkis hinna 14 samveldisríkjanna sem hafa Karl III konung sem þjóðhöfðingja. Forsætisráðherrann sagðist hafa skrifað til leiðtoga fylkja og landsvæða Ástralíu, sem einnig þyrftu að samþykkja breytinguna á konungsveldinu. Ástrali velgi við samskiptum Epstein Í bréfi til Starmer á mánudag sagði Albanese að ríkisstjórn hans myndi samþykkja allar tillögur um að fjarlægja Andrew Mountbatten-Windsor úr erfðaröðinni og sagði ásakanir á hendur honum alvarlegar. Við ABC sagði Albenese Ástrali velgja við uppljóstrunum um samskipti Epstein við opinberar persónur. Þeir vilji að stjórnvöld séu skýr um afstöðu sína. „Karl konungur hefur sagt að lögin verði nú að fá fram að ganga. Það verður að fara fram full, sanngjörn og rétt rannsókn. Og það þarf að gerast,“ segir Albanese.