Þremur komum Icelandair frá Bandaríkjunum aflýst

Boeing 737 MAX þota Icelandair á flugi.RÚV / Ragnar Visage Þremur flugferðum Icelandair frá New York og Boston sem lenda áttu í Keflavík um klukkan sex í fyrramálið hefur verið aflýst að því er segir á vef Isavia . Allt annað flug er á áætlun. Illviðri sem hefur gengið yfir norðausturhluta Bandaríkjanna hefur valdið samgöngutruflunum og rafmagnsleysi.