Norsk-franski rannsóknardómarinn Eva Joly kveðst glöð vilja leiða óháða rannsóknarnefnd sem fjallar um þátt háttsettra Norðmanna í Epstein-skjölunum. Það sé þó Stórþingsins að ákveða hvort hún fái hlutverk í nefndinni og þá hvaða. Joly segir í samtali við TV2 slíka rannsókn afar brýna og þótt nefndinni sé ætlað að þau norsku nöfn sem er að finna í skjölunum ætti hún að kafa dýpra og spyrja meðal annars hvernig bæta megi stofnanaumhverfið í Noregi. Nefndin þurfi að hafa mjög víðtækt umboð. Vilji virðist til þess innan þingsins. Joly segir alþjóðlegt orðspor Noregs hafa beðið alvarlega hnekki þegar á daginn kom hversu margir höfðu náin tengsl við Epstein. Eva Joly bendir á að náin tengsl sendiherrahjónanna Monu Juul og Terje Rød-Larsen við Epstein hafi komið á daginn 2019 og spyr hví efnahagsbrotadeild lögreglunnar Økokrim hafi ekki brugðist umsvifalaust við á þeim tíma. Vitaskuld sé gott að rannsókn sé hafin á athæfi þeirra og Thorbjørns Jagland, fyrrverandi forsætisráðherra. Hann hefur réttarstöðu sakbornings. Ekki sé útilokað að nöfn fleiri norskra framámanna eigi eftir að skjóta upp kollinum, ekki síst ef skjölin verði opnuð almenningi. „Skjölin veita innsýn í hvernig alþjóðlega elítan hagar sér. Mörg þeirra héldu að aldrei kæmist upp um þau,“ segir Eva Joly. Stórþingið hefur ákveðið að setja slíka nefnd á laggirnar og til stendur að skipa hana þegar í þessari viku og ákveða hver muni leiða hana. Sú ákvörðun kemur í hlut forseta þingsins en fulltrúar Græningja hafa stungið upp á Evu Joly. Hún lagði til, snemma í febrúar, að óháð þingnefnd verði stofnuð til að hafa auga með athæfi auð- og valdastéttarinnar. Aðspurð segist Eva Joly ekki hafa orðið undrandi á því sem finna mátti í skjölunum, öfugt við flesta Norðmenn. Eva Joly hefur rannsakað spillingu víðs vegar um Evrópu árum saman og hefur skrifað bækur um hvað voldugustu leiðtogar heims aðhafast að tjaldabaki. Hún starfaði með sérstökum saksóknara á Íslandi í hálft annað ár eftir bankahrunið og rannsakaði Elf-málið í Frakklandi, sem leiddi til sakfellingar þrjátíu manna.