Hópur þjóðarleiðtoga, þar á meðal Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra, eru komin til Kyiv, höfuðborgar Úkraínu, þar sem þess verður minnst í dag að fjögur ár eru liðin frá því að Rússar gerðu allsherjarinnrás í landið. Þetta er í annað skiptið sem Kristrún kemur til Kyiv, en hún var fyrir réttu ári síðan. Kristrún kom ásamt nokkrum öðrum leiðtogum í lest frá pólsku borginni Przemyśl til Kyiv um klukkan átta í morgun að staðartíma. Framundan er þétt dagskrá; tvær minningarathafnir og skoðunarferð um orkumannvirki nálægt Kyiv; eitt af þeim mannvirkjum sem skemmst hafa í linnulausum árásum Rússa undanfarna daga og vikur á orkumannvirki í Úkraínu. Kristrún verður svo viðstödd leiðtogafund „Coalition of the willing“, sem er bandalag hátt í fjörtíu ríkja sem fylkt hafa sér að baki Úkraínu. Í eftirmiðdaginn verður síðan leiðtogafundur NB8 ríkjanna, Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna með Volodymyr Zelensky Úkraínuforseta.