Endurreisn í kjölfar samfélagsröskunar er lang tímafrekasta, lang flóknasta, og lang minnst undirbúið verkefni ríkisins vegna náttúruhamfara. Endurreisn samfélagsins á Seyðisfirði vegna aurskriðanna 2020 hefur verið lýst eins og að bunka af blöðum hafi verið hent út í loftið; blöðin sveiflast rólega fram og til baka og lent svo bara einhvers staðar. Margir Grindvíkingar hafa einnig lýst sinni upplifun á þá vegu að skortur sé á utanumhaldi um heildar verkefnið.