Einn var fluttur á bráðadeild eftir að bíl var ekið á ljósastaur

Lítil slys urðu á fólki þegar bifreið var ekið á ljósastaur á Reykjanesbraut nærri Smáralind í gærkvöld. Lögreglubílar standa við lögreglustöðina á Hverfisgötu. Mynd úr safni.RÚV / Ragnar Visage Samkvæmt upplýsingum frá varðstjóra hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins þurftu tveir sem í bílnum voru minniháttar aðhlynningu og var annar fluttur á bráðadeild til aðhlynningar. Ekkert tjón hlaust af þegar eldur kviknaði í potti við eldamennsku í vesturborginni og þjófnaður úr verslun í Kópavogi var afgreiddur á staðnum, að því er segir í morgunskeyti lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.