Eftir áratugalangt tal um að Ísland þurfi heildstæða ungmennastefnu er vinna loksins hafin við gerð fyrstu ungmennastefnu Íslands. Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins frá 21. desember 2024 var kveðið á um að móta ætti slíka stefnu.