Fjörutíu milljarða greiðsla Kerecis snýr halla á ríkissjóði í afgang
Íslenska frumkvöðlafyrirtækið Kerecis mun í haust greiða 40 milljarða króna eingreiðslu í ríkissjóð Íslands. Um er að ræða skatt vegna kaupa Coloplast, móðurfélags Kerecis, á hugverkaréttindum dótturfyrirækisins.