Austanáttirnar sem hafa verið ríkjandi það sem af er ári verða nú að gefa eftir og breytileikinn tekur völdin í veðrinu. Útlit er fyrir norðan- og norðvestanátt í dag og má búast við snörpum hviðum á Austfjörðum undir kvöld. Éljar verða norðan- og vestanlands og samfelld slydda eða slydda á austanverðu landinu þar til í kvöld. Veðurspáin í dag: Snýst í norðan og norðvestan átta til fimmtán metra á sekúndu í dag, en þrettán til tuttugu á Austfjörðum undir kvöld. Él norðan- og vestanlands. Rigning eða slydda um landið austanvert, en styttir upp þar í kvöld. Kólnandi veður, frost um allt land í kvöld. Suðvestan og sunnan átta til fimmtán á morgun og snjókoma eða él, en yfirleitt þurrt á austanverðu landinu. Frost 0 til 7 stig, hlýnar annað kvöld.