Héraðsdómur Norðurlands vestra dæmdi atvinnubílstjóra á föstudag til 30 daga skilorðsbundinnar fangelsisrefsingar og svipti hana ökuréttindum í þrjá mánuði. Konan sofnaði undir stýri þegar hún ók rútu með farþega frá Keflavíkurflugvelli. Bíllinn valt á hliðina á Norðurlandsvegi við Brekku í Húnabyggð. Einn farþegi handleggsbrotnaði, annar hlaut opin sár á höfði og staðbundinn áverka á heila og hnéskel þess þriðja brotnaði, viðkomandi kramdist á hægri fæti og greindist með brot á hálsliðum. Aðrir farþegar sluppu með mar og skrámur. Konan játaði sök eftir að fallið var frá ákæru um brot á hvíldartíma ökumanna. Héraðsdómur Norðurlands vestra.RÚV / Aðsent