Lögðu grunninn að þáttunum í pabbafríi á Tenerife

Heimildarþættirnir Stjörnubíó á RÚV hafa fengið frábærar viðtökur hjá áhorfendum. Ein sígild íslensk kvikmynd er tekin fyrir í hverjum þætti, Stella í Orlofi reið á vaðið, svo kom Nýtt líf og næsta laugardag verður Íslenski draumurinn tekinn fyrir. Ari Eldjárn og Gunnar Páll Ólafsson lögðu grunninn að þáttunum á Tenerife, þar sem þeir sögðu hvor öðrum sögur á kvöldin. „Dætur okkar eru góðar vinkonur og við áttum nokkur pabbafrí á eyjunni fögru. Þar var svolítið setið frameftir og sagðar sögur,“ sagði Gunnar í Morgunútvarpinu. Þegar heim var komið velti hann fyrir sér hvað hann gæti gert við þessar sögur og þá sagði Samúel Bjarki Bjarki Pétursson, vopnabróðir hans til margra ára, að þetta væri auðvitað sjónvarpsþáttur. Hlustaðu á viðtali við Ara og Gunnar í spilaranum hér fyrir ofan.