„Það er bæði verið að misnota sér ástand hennar og það er verið að taka það upp,“ segir athafnakonan Margrét Erla Maack sem ræddi kynni sín af bandarísku ofurfyrirsætunni Shandi Williams í Morgunútvarpinu á Rás tvö í morgun. Williams keppti í annarri þáttaröð bandarísku raunveruleikaþáttanna America's Next Top Model. Hún flutti til Íslands um skeið og bjuggu þær Margrét saman á tímabili. Í nýjum heimildaþáttum sem frumsýndir voru á Netflix í síðustu viku er þáttunum gerð ítarleg skil og er þar meðal annars fjallað um reynslu Williams. Morgunútvarpið ræddi við Margréti um sögu Williams og þá slæmu meðferð sem keppendur þáttanna þurftu að sæta meðan á framleiðslu þeirra stóð.